Garðyrkjuskóli ríkisins.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hennar svör. Hún svaraði reyndar ekki spurningu minni alfarið um það hvort hæstv. ráðherra væri tilbúin að skoða þann möguleika, að Garðyrkjuskólanum yrði falin umsjón og staðarhald á Reykjum í samvinnu við atvinnulífið. Hún svaraði þeirri spurningu ekki. Ég legg áherslu á að skólinn verði fagskóli fyrir allt landið í samráði við fagfélögin og atvinnulífið og fái að halda aðstöðu sinni að Reykjum. Ég fer fram á að hæstv. ráðherra svari þessari spurningu, hvort hún sé tilbúin til þessa. Það er afar mikilvægt að hér takist vel til svo garðyrkjunáminu verði sköpuð örugg framtíð í nánum tengslum við atvinnugreinar garðyrkjunnar sem eru í miklum og örum vexti. Ráðherra heldur svo sannarlega um fjöregg garðyrkjunnar. Það er mikilvægt að vel takist til. En það má ekki gerast að einhverjir hlutar Reykjatorfunnar fari undan garðyrkjunáminu. Það er vísasta leiðin til að námið liðist í sundur.