151. löggjafarþing — 69. fundur,  18. mars 2021.

Garðyrkjuskóli ríkisins.

[13:16]
Horfa

mennta- og menningarmálaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F):

Virðulegur forseti. Það stendur til að efla námið þar, á Reykjatorfunni, að sjálfsögðu. Hún er óaðskiljanlegur hluti af framtíðinni. Ef það er einhver í vafa um að efla eigi að starfið á Reykjum þá segi ég það bara hér og nú að það stendur ekki til og hefur aldrei staðið til. Við höfum verið að fjárfesta á svæðinu og við viljum gera það áfram. Það varð ekki fyrir alls löngu tjón sem við höfum komið inn í til að bæta og efla. En það kemur ekki til greina, ef hv. þingmaður hefur áhyggjur af því, að veikja Reyki á nokkurn hátt.