tilslakanir í sóttvörnum .
Virðulegi forseti. Við á Íslandi erum í ákaflega öfundsverðri stöðu hvað varðar veiruna. Í rauninni getur líf farið að færast hér í eðlilegt horf bráðlega ef áfram heldur sem horfir. Landið er veirufrítt að kalla. Leikhús getað opnað og tónleikasalir og veitingahús, og mannlíf getur orðið hér líflegt. En þessu er nú verið að tefla í tvísýnu. Ríkisstjórnin hefur ákveðið að opna landamærin fyrir fólki sem kemur frá löndum utan Schengen framvísi það vottorðum. Þetta virðist ríkisstjórnin hafa gert að höfðu samráði við ferðaþjónustuna, enda eru þar miklir hagsmunir í húfi sem við höfum öll skilning á. Hins vegar er á það að líta að hægt er að vera rauður þó að maður komi frá grænu svæði og ýmis hætta í þessu. Sóttvarnalæknir hefur látið á sér skilja að þetta sé ekki að höfðu samráði við hann.
Nú langar mig að spyrja hæstv. fjármálaráðherra og formann Sjálfstæðisflokksins hvort verið geti að þetta stangist á við 12. gr. sóttvarnalaga þar sem segir skýrum orðum, með leyfi forseta:
„Ráðherra ákveður að fenginni tillögu sóttvarnalæknis hvort skuli hvort grípa skuli til opinberra sóttvarnaráðstafana“ o.s.frv.
Ég spyr einfaldlega: Er löglega staðið að þessari ákvörðun?