151. löggjafarþing — 69. fundur,  18. mars 2021.

tilslakanir í sóttvörnum.

[13:19]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ákvörðunin sem vísað er til er annars vegar varðandi bólusetningarmálin almennt og svo hins vegar varðandi landamærin, er ákvörðun sem hvílir á herðum dómsmálaráðherra. Það sem málið snýst um efnislega er að horfa til þess að ef ferðalangur hefur verið bólusettur eða hefur sannarlega áður smitast og er með mótefni, þurfi ekki lengur að réttlæta sérstaklega komu hans til landsins með því að hann eigi brýnt erindi. Sem sagt: Á landamærunum hyggjumst við taka það gilt að hafi viðkomandi viðurkennt bólusetningarvottorð, með bóluefni sem við könnumst við að virki, þá sé ekki að óttast það að hann komi inn í landið. Þetta er kjarninn í þeirri ákvörðun sem annars vegar heilbrigðisráðherra og hins vegar dómsmálaráðherra kynntu í vikunni.

Við skulum aðeins velta þessu fyrir okkur: Bólusetjum við ekki nú í dag eins hratt og við getum? Trúum við því ekki að sú bólusetning muni duga og virka? Höfum við ekki boðað það að þegar við höfum bólusett þjóðina getum við dregið úr sóttvarnahömlum og takmörkunum á venjulegu lífi fólks vegna þess að bóluefnið muni duga til að koma í veg fyrir að við búum við hættuna á því að ofgera heilbrigðiskerfinu, að þar leggist inn of margir, til þess að ekki sé reynt á þanþol heilbrigðiskerfisins og margir séu í lífshættu? Trúum við þessu eða ekki? Ef við trúum því að bóluefnið og bólusetning þjóðarinnar muni gera okkur kleift að losna úr þeim fjötrum sem hinar ýmsu sóttvarnatakmarkanir og -ráðstafanir setja okkur í þá hljótum við með nákvæmlega sama hætti að hafa trú á því að bólusett fólk setji okkur ekki í einhverja sérstaka hættu eða að af því stafi ógn ef það kemur inn í landið.