151. löggjafarþing — 69. fundur,  18. mars 2021.

tilslakanir í sóttvörnum.

[13:22]
Horfa

Guðmundur Andri Thorsson (Sf):

Virðulegi forseti. Við þekkjum öll þær takmarkanir sem sóttvarnir hafa sett okkur þó að þær hafi vissulega bitnað misjafnlega á okkur sem einstaklingum. Ég segi fyrir mína parta, og ég trúi því að ég tali fyrir munn þingheims, að auðvitað trúum við öll á að bóluefnin muni virka og við trúum því að þessi bóluefni muni breyta íslensku þjóðlífi til hins betra. Þetta snýst ekkert um það. Þetta snýst um að fara að sóttvarnalögum, fara að 12. gr. sóttvarnalaga þar sem segir, með leyfi forseta: „Ráðherra ákveður að fenginni tillögu sóttvarnalæknis hvort grípa skuli til opinberra sóttvarnaráðstafana“ o.s.frv. Það hefur ekki verið gert hér. Það hefur komið fram hjá sóttvarnalækni að ekki hafi verið haft samráð við hann og hann hefur látið á sér skilja að honum þyki þetta óráðlegt og ótímabært. (Forseti hringir.) Því spyr ég hæstv. ráðherra aftur hvort hann telji að hér hafi verið farið að lögum.