151. löggjafarþing — 69. fundur,  18. mars 2021.

tilslakanir í sóttvörnum.

[13:23]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Hér er hv. þingmaður að spyrja mig út í ákvarðanir annarra ráðherra og ég er ekki með neinar upplýsingar um það nákvæmlega á hvaða grundvelli — eftir hvers konar könnun, samtöl, samráð — tillögur ráðherranna hafa verið gerðar og hef enga skoðun á því hvort það kunni að standast 12. gr. laganna. En ég trúi ekki að hv. þingmaður sé orðinn svo mikill formalisti að hann hafi ekki efnislega skoðun á þessu máli. Þetta mál hefur efnislega þýðingu, stórkostlega, fyrir okkur, ekki bara í efnahagslegu tilliti heldur líka varðandi frelsi okkar hér innan lands til að endurheimta fyrra líf. Hér er hv. þingmaður að láta í það skína að verið sé að taka mikla áhættu með því að treysta á bóluefnin, að við þurfum að gæta okkar á því að fara ekki fram úr okkur. Ef þessi málflutningur á að ráða för hlýtur hann eins að gilda gagnvart fólki hér innan lands og þeim sem koma bólusettir yfir landamærin. Það þýðir þá, ef menn trúa þessu alla leið, að almenn bólusetning hér innan lands verði ekki lykillinn að því að endurheimta fyrra frelsi. (Forseti hringir.) Ég segi þetta vitandi allt um það að ný afbrigði veirunnar geta komið upp sem þarf að bregðast við. En að því gefnu að við séum ekki að glíma við eitthvað slíkt finnst mér þetta hafa verið mjög eðlileg ráðstöfun hjá ráðherranum. (Gripið fram í: Eigum við ekki að treysta sóttvarnalækni?)