húsnæðismál menntastofnana.
Virðulegi forseti. Við höfum verið að vinna að því og kláruð var frumathugun á þeirri þörf sem Listaháskóli Íslands hefur er varðar húsnæðismál. Það kláraðist núna síðasta sumar. Svo hafa mennta- og menningarmálaráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og forsætisráðherra verið að skoða þá valmöguleika sem eru og hvar skólinn gæti mögulega verið staðsettur. Sú vinna er að klárast og verður tekin ákvörðun í framhaldinu.
Ég vil nefna það að samstarfið við fjármála- og efnahagsráðherra, við forsætisráðherra og alla þá sem koma að þessu hefur verið mjög gott. Það er fullur hugur í okkur að reisa og fjárfesta í þannig húsnæði að verið sé að horfa til framtíðar. Við höfum lagt mikla vinnu í þetta. Við höfum sagt að við myndum fá lausn í málefnum Listaháskólans á þessu kjörtímabili og eins og ég sagði, í viðtali við Morgunblaðið, mun það gerast á allra næstu dögum. Við leggjum auðvitað ríka áherslu á það að húsnæðið sé öruggt, það sé framúrstefnulegt og mæti þörfum hinna skapandi greina á Íslandi. En ég fullvissa hv. þingmann um að við vinnum að þessu af samviskusemi. Við erum líka kjörkuð þegar við förum í þetta en það tekur auðvitað tíma og við þurfum að huga að því hvort við séum ekki örugglega að mæta þeirri þörf sem raunverulega er fyrir hendi.