áhrif efnahagshrunsins 2008 og aðgerða stjórnvalda á hag heimilanna.
Herra forseti. Markmiðið með skýrslubeiðni þessari er að draga fram áhrif hrunsins og eftirleiks þess á fjölskyldur og heimili landsmanna. Í kjölfar hrunsins hafa málefni sem varða aðgerðir vegna skuldavanda heimilanna verið á borði hæstv. forsætisráðherra og hlutaðeigandi fagráðuneyta. Í því ljósi, sem og að efnisatriði sem óskað er eftir greiningu á falla undir málaflokka í fleiri en einu ráðuneyti, telja skýrslubeiðendur rétt að forsætisráðherra leiði vinnuna. Nauðsynlegt er að þekkja afleiðingar hrunsins og áhrif af aðgerðum stjórnvalda til að renna stoðum undir aðgerðir til að auka neytendavernd á fjármálamarkaði og verja þannig heimili landsmanna.