151. löggjafarþing — 69. fundur,  18. mars 2021.

áhrif efnahagshrunsins 2008 og aðgerða stjórnvalda á hag heimilanna.

608. mál
[13:35]
Horfa

Birgir Ármannsson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Ég hef áður komið í þennan ræðustól af því tilefni að lagðar eru fram viðamiklar skýrslubeiðnir og gert athugasemdir við að hugsanlega væri verið að fara út um víðan völl og reyna einhvern veginn að ná með of víðtækum hætti utan um málin. Persónulega er ég þeirrar skoðunar að kannski sé betra að reyna að spyrja markvissari spurninga sem varða tiltekin álitamál í þessu sambandi frekar en að spyrja svona galopið eins og felst í þessari skýrslubeiðni. Ég leggst ekki gegn því að þetta mál fari hér áfram en ég leiði enn hugann að því hvort við séum á réttri leið með því að leggja hvað eftir annað fram ítarlegar skýrslubeiðnir sem ekki beinast með markvissum hætti að einhverjum tilteknum atriðum sem þarf að skoða nánar.

Þetta vildi ég segja, hæstv. forseti, en ég mun sitja hjá við þessa atkvæðagreiðslu.