áhrif efnahagshrunsins 2008 og aðgerða stjórnvalda á hag heimilanna.
Herra forseti. Í tilefni af orðum hv. þingmanns sem hér tók síðast til máls, þá hefur á það reynt að spurt sé spurninga sem varða afmarkaða þætti þess sem gerðist eftir hrun. Það hefur tekið tvö til þrjú ár að fá upplýsingar sem ættu að liggja á lausu og ráðherrar hafa lagt það á sig að fara á svig við lög um þingsköp og ráðherraábyrgð til þess að tefja það að svör við einföldustu spurningum komi fram fyrir þinginu. Það er því ekki að ófyrirsynju að hér sé beðið um skýrslu um þetta mál þótt stórt sé. Það er kominn tími til þess, herra forseti, að eftirköst hrunsins séu gaumgæfð og sérstaklega áhrif á fjölskyldur í þessu landi sem margar hverjar misstu húsnæði sitt. Þær spurningar sem sá sem hér stendur hefur lagt fram varða t.d. 10.000 manns sem misstu heimili sitt, en því hefur sáralítill gaumur verið gefinn.