151. löggjafarþing — 69. fundur, 18. mars 2021.
umferðarlög.
280. mál
Herra forseti. Vistgötur eru einkum ætlaðar til dvalar og leiks, en umferð ökutækja er þar engu að síður heimil með takmörkunum. Samgönguráðherra hefur áhyggjur af hraðakstri í vistgötum en ekki vegna þeirrar hættu sem fólki stafar af hraðakstri heldur vegna þess að ökumönnum sé svo hætt við sektum ef þeir keyra of hratt. Það er öfugsnúin forgangsröðun að bregðast við hraðakstri með því að hækka hraðamörk frekar en að leita annarra leiða til að tryggja örugga vist í vistgötum. Ég segi nei.