151. löggjafarþing — 69. fundur,  18. mars 2021.

umferðarlög.

280. mál
[13:46]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Herra forseti. Hér er lögð til sektarheimild við brotum á 43. gr. umferðarlaga sem fjallar um tillitssemi hjólreiðafólks. Við umfjöllun málsins hefur hvorki komið fram hvort eða hvernig tillitssemi sé áfátt né hvernig sektir muni laga þetta meinta vandamál. Eins og fram kom í máli framsögumanns hér við umræðu er þessi lagagrein óljós sektargrundvöllur. Nýlegt dæmi frá Eiðsgranda sýnir að lögreglustjóraembættin sjálf greinir meira að segja á um grunnreglur umferðarlaga hvað snertir hjólreiðafólk, eins og hvort heimilt sé að hjóla á miðjum akbrautum eða ekki. Í því ljósi liggur beinast við að fresta þessari breytingu þar til ráðuneytið hefur greint betur þörfina fyrir henni.

Ég segi nei.