151. löggjafarþing — 69. fundur,  18. mars 2021.

umferðarlög.

280. mál
[13:48]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Herra forseti. Ég ætlaði aðeins að gera grein fyrir þeim fyrirvara sem ég gerði við þetta frumvarp; hann sneri að því að vandamál varðandi svokallaða trúnaðarlækna Samgöngustofu er algjörlega óleyst, þ.e. varðandi ökumenn sem vísað er til læknis eftir að hafa verið sviptir ökuleyfi til bráðabirgða. Þetta ákvæði er algjörlega óútfært og komið hafa upplýsingar um að þetta ákvæði hafi alls ekki náð tilgangi sínum. Þetta þarf að leysa og ég hélt satt að segja, herra forseti, að framsögumaður þessa máls færi fram á það hér við þessa atkvæðagreiðslu að málið færi aftur til nefndarinnar til að freista þess að leysa það og hugsanlega einhver önnur mál sem standa út af borðinu. Það er auðvitað óboðlegt að hér séu lög í gildi sem ekki er farið eftir og sá sem á að framkvæma það lyfti bara höndum og segi að ekki sé hægt að framkvæma þetta. Við verðum að leysa úr þessu og ég óska eftir því að málið fari aftur til nefndar á milli umræðna.