aðgerðir til að styrkja stöðu íslensks landbúnaðar.
Virðulegur forseti. Það er svo sem ekki ný umræða hvernig nákvæmlega eigi að styðja við landbúnaðinn á Íslandi. Það er þó þannig, og sé ég ekki ágreining um það, að hvaða leið sem er valin felur alltaf í sér einhvers konar ríkisinngrip og einhvers konar styrk með fé neytenda eða skattgreiðenda. Þegar kemur að tollvernd þá veldur hún á ákveðinn hátt földum skatti. Það eru neytendur sem borga meira til þess að tryggja að hér sé innlend framleiðsla, markmið sem þó er enginn ágreiningur um. Það eru fleiri leiðir mögulegar til þess að vernda tiltekinn iðnað eða atvinnustarfsemi eða framleiðslu heldur en tollvernd eins og við þekkjum. Það er hægt að styðja sumar greinar beinlínis með fjárframlögum og þá skiptir auðvitað máli hvernig það er gert. Nú ætla ég ekki að þykjast geta leyst úr þessari umræðu á fjórum mínútum en ég vil þó hvetja fólk til þess að kynna sér fyrirbæri sem er kallað borgaralaun. Þá á ég ekki við fyrir samfélagið allt, alla vega ekki í fyrstu skrefum, en það er áhugavert að bera saman hvernig útreikningarnir líta út þegar litið er á þjóðina og fjárhag ríkisins í heild eða tiltekna þætti þess annars vegar og hins vegar fjárútlátin úr ríkissjóði sem fara til landbúnaðarins miðað við það fólk sem vinnur í landbúnaði. Þá verða tölurnar ekki það galnar, jafnvel í dag, virðulegi forseti. Slíkt styrkjakerfi hygg ég að væri okkur sómi að skoða af fullri alvöru, þ.e. að greiða bændum og fólki í landbúnaði grunnborgaralaun sem myndi frelsa þessa sömu bændur frá tilteknum skilyrðum um hvað eigi að framleiða eða í hvaða magni og leyfa þeim að stunda sína nýsköpun með mun færri skilyrðum og miklu fleiri tækifærum til að nýta án þess að spyrja svokallaðan kóng eða svokallaðan prest. En vonandi kemst ég meira í þetta í næstu ræðu.