aðgerðir til að styrkja stöðu íslensks landbúnaðar.
Frú forseti. Ég byrja á því að þakka hv. þm. Sigurði Páli Jónssyni fyrir að hefja þessa umræðu og hafa hæstv. ráðherra hér til svara. Við erum núna á endasprettinum á þessu kjörtímabili. Ýmislegt hefur svo sem verið gert á kjörtímabilinu sem viðkemur landbúnaði og vil ég minna á þingsályktun um aðgerðaáætlun um matvælaöryggi og vernd búfjárstofna sem við samþykktum á vordögum 2019. Mig langar að beina því til ráðherra hvort hann geti upplýst okkur um það hvernig þeirri aðgerðaáætlun miðar en það var lagt í fjölda liða í þeirri vegferð. Þar eru vissulega mjög metnaðarfullir og góðir þættir sem vert er að gefa gaum sem snúa t.d. að sýklalyfjanotkun í dýraafurðum og þess háttar.
Frú forseti. Það er margt í starfsumhverfinu hjá landbúnaðinum sem þarf endilega að endurskoða og laga. Ætla ég enn og aftur að þreyta þingheim með því að minnast hér á undanþágu frá 71. gr. búvörulaga sem viðkemur kjötafurðastöðvum. Það er einfaldlega þannig í dag að sá innflutningur sem kemur til landsins er sá sem stýrir hér verði á smásölumarkaði og við verðum að láta innlenda framleiðsluaðila okkar fá einhver verkfæri í hendurnar til að takast á við þá samkeppni sem er á markaði. Ég kem frekar inn á það á eftir í seinni ræðu.