151. löggjafarþing — 72. fundur,  23. mars 2021.

dagur Norðurlanda.

[13:00]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseti telur rétt að vekja athygli hv. alþingismanna á því að í dag, 23. mars, er dagur Norðurlandanna. Þann dag árið 1962 var Helsingfors-sáttmálinn undirritaður. Sáttmálinn tryggir öllum ríkisborgurum Norðurlanda m.a. jafnt aðgengi til náms og vinnu hvar sem er á Norðurlöndunum og er hornsteinn samstarfs ríkjanna sem kristallast ekki síst í Norðurlandaráði. Norræn félög alls staðar á Norðurlöndunum halda daginn hátíðlegan, fagna norrænu samstarfi og benda á mikilvægi þess. Af þessu tilefni er nú fánum Norðurlandanna flaggað hér við inngang Alþingishússins. Þess má jafnframt geta að fyrr í dag áttum við forsetar norrænu þjóðþinganna með okkur stuttan fund, fjarfund að sjálfsögðu.