151. löggjafarþing — 72. fundur,  23. mars 2021.

málefni fanga.

[13:23]
Horfa

dómsmálaráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Það er mikilvægt að það komi fram að þessu er einu sinni ráðstafað. Það er það sem við erum að reyna að gæta að, að þessi tillaga fjárlaganefndar verði bara um eina upphæð en komi ekki inn aftur og aftur. Við viljum gera samning um tiltekin verkefni, sem hægt er að klára og ljúka og sinna, við þessi félög, þessi mörgu góðu félög sem eru til stuðnings við fanga. Það hefur ítrekað sýnt sig að allur stuðningur við fanga og öll bataúrræði eru nauðsynleg til að fækka endurkomum í fangelsin og tryggja að við séum að gera viðkomandi að virkum samfélagsþegnum að nýju þegar fangelsisrefsingu er lokið. Allar þær ráðstafanir sem eru í þessum málaflokki núna eru auðvitað til að tryggja að kerfið fúnkeri fyrir þennan hóp og styrki þennan hóp (Forseti hringir.) svo að hann komi sterkur til baka inn í samfélagið. Skilyrðin sem við erum að skapa skila vonandi bæði hamingjusamari og skilvirkari einstaklingum út í samfélagið.