151. löggjafarþing — 72. fundur,  23. mars 2021.

reglur um vottorð á landamærum.

[13:27]
Horfa

ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Auðvitað er þetta allt saman mjög flókið, óvissan enn þá óþolandi mikil og það eru takmörk fyrir því hvaða stjórn við höfum á þessu öllu saman. Við þekkjum ágætlega hvaða áhrif smit hafa og höfum auðvitað verið að glíma við það hér í meira en ár. Við getum með engu móti stýrt því hvað önnur ríki ákveða eða stöðu veirunnar eða sóttvarna í öðrum ríkjum. En við sjáum líka hvaða efnahagsáhrif smit hafa. Sú ákvörðun sem tekin var á Englandi snýr, að mér skilst, eingöngu að Englandi en ekki Bretlandi öllu og eins og staðan er núna skilst mér að það sé bara þangað til í maí. Íslandsstofa hefur verið að mæla ferðavilja og við fundum að viðbrögð við þessari ákvörðun voru líklega hvað mest í Bandaríkjunum og hjá fólki sem er þegar bólusett.

Það breytir ekki því að í gegnum allt þetta verkefni, og ekki veit ég hvenær því lýkur eða hvernig, erum við einfaldlega að taka ákvarðanir út frá bestu getu og bestu þekkingu sem við höfum hverju sinni. Stundum breytist það ekki, stundum breytist það eftir nokkrar vikur og stundum breytist það einfaldlega daginn eftir að við tökum einhverja ákvörðun. Ég lít svo á að ekki þýði fyrir okkur að sitja með hendur í skauti og bíða bara heldur erum við sífellt að reyna að tryggja meðalhóf, finna einhvern meðalveg og reyna að koma okkur áfram, tryggja einhverja viðspyrnu án þess að taka óþarfaáhættu út frá sóttvörnum. Þessi ákvörðun, sem felur í raun bara í sér framhald af ákvörðun sem þegar hefur verið tekin varðandi það að taka bóluefnavottorð og mótefnavottorð gild, mun skipta máli. En áfram erum við bundin ytri aðstæðum sem við höfum mjög litla stjórn á.