rekstur hjúkrunarheimila.
Virðulegi forseti. Nú stefnir í töluverðar breytingar á rekstri hjúkrunarheimila í landinu þar sem rekstur nokkurra hjúkrunarheimila á landsbyggðinni er að flytjast frá fjórum af stærri sveitarfélögunum til ríkisins. Ég ætla ekkert að rekja aðdragandann að þessari breytingu en sú leið hefur verið óþarflega grýtt og ég tel að nýta hefði mátt síðustu mánuði betur til samtals og vinnu að sameiginlegri niðurstöðu. Þessar breytingar kunna að vera skynsamlegar en ég sakna þess og hef áhyggjur af því að þetta gerist án undangenginnar umræðu og stefnumótunar um hvað sé íbúum hjúkrunarheimila fyrir bestu, hvernig þjónustu við aldraðra verði best sinnt í hverju samfélagi og hvernig opinbert fé nýtist sem best. Því spyr ég: Hvaða framtíðarsýn hefur hæstv. heilbrigðisráðherra og hvaða stefnumótunar- og greiningarvinna fer nú fram á vegum stjórnvalda varðandi þjónustu við aldraða sem þarfnast stuðnings í daglegu lífi? Hefur verkefnisstjórnin, sem falið var að ráðast í greiningu á rekstrarkostnaði hjúkrunarheimila fyrir 1. nóvember 2020, skilað niðurstöðum?
Sum þessara sveitarfélaga þar sem breytingarnar standa nú yfir voru um tíma í hlutverki tilraunasveitarfélaga þar sem markmiðið var beinlínis að einn aðili hefði yfirsýn yfir og sæi um að samþætta alla þjónustu við aldraða í nærsamfélaginu, svo sem félagslega þjónustu, heimahjúkrun og rekstur hjúkrunarheimila. Hvað gerist nú í þessum samfélögum? Verður þessari þjónustu aftur deilt á tvær til þrjár hendur eða hefur verið unnið skipulega úr þessum tilraunaverkefnum og verður reynsla nýtt við mótun þjónustunnar áfram?
Og að lokum: Úr því sem komið er og þar sem allt stefnir í að skipt verði um rekstraraðila, væri þá ekki mikilvægt að gefa góðan tíma í það verkefni þannig að tryggja megi vandaða, yfirvegaða og ígrundaða yfirfærslu verkefna?