opinber stuðningur við nýsköpun.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Smára McCarthy fyrir góða ræðu og góða gagnrýni á það frumvarp sem við ræðum hér um. Í ljósi alþjóðlegrar reynslu hv. þingmanns og sömuleiðis reynslu hans af þingmannsstörfum sem formaður þingmannanefndar EFTA væri ég forvitin að heyra frá honum hvort ekki sé nauðsynlegt að gefa í þegar kemur að alþjóðlegri samvinnu á sviði nýsköpunar. Margar góðar umsagnir bárust um þetta mál en mjög góð umsögn barst frá Kristjáni Leóssyni, sem er mikill vísindamaður. Þar kemur fram að undanfarin ár hafi samkeppnishæfni Íslands farið versnandi í alþjóðlegum samanburði. Alþjóðleg samvinna og samstarf á vettvangi hins opinbera er, eins og við vitum flest, gríðarlega mikilvægt fyrir alþjóðlega samkeppnishæfni landsins.
Mig langar að vita hvort hv. þingmaður deili þeirri sýn með mér. Mér heyrðist hann alla vega koma aðeins inn á það í ræðu sinni. Það væri gott að fá nánari útlistanir á því hvort hv. þingmaður deili því með mér að við þurfum að efla og styrkja þessa alþjóðlegu sýn í samstarfi og samvinnu á alþjóðavettvangi. Sér hann fyrir sér að þetta frumvarp geri það nægilega vel?