menntastefna 2020--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta svar sem var var gott. Ég held nefnilega að ekki fari vel á því að alþingismenn séu mikið að setja fram einhverjar reglur um það hvernig eigi að kenna að lesa. Við getum ekki samþykkt lög um að einhver tiltekin lestraraðferð skuli gilda frekar en önnur. Ég held að þeir tímar séu liðnir að alþingismenn eða ráðamenn geti verið að hlutast til um slíkt heldur sé einmitt, eins og hv. þingmaður vék að, lykillinn hér að mæta hverjum einstaklingi á sínum forsendum, mæta hverju barni á sínum forsendum og miða þá kennsluna við eiginleika hvers barns og það samband sem maður á í við viðkomandi barn. Það er kannski einkennileg spurning miðað við það ævistarf sem ég á, á sviði bóka og bókagerðar, en getur hugsast að við einblínum samt sem áður of mikið á þessa tilteknu færni hjá börnum, að við dæmum börn of snemma úr leik sem ekki ná tökum á þessari tilteknu færni en hafa til að bera einhverja aðra færni? Við látum þau kannski vera að berjast við að læra að lesa og einbeita sér þannig á bestu lærdómsárum sínum að veikleikum sínum frekar en að byggja upp styrkleika sína.