151. löggjafarþing — 72. fundur,  23. mars 2021.

menntastefna 2020--2030.

278. mál
[22:09]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna, sem var athyglisverð. Ekki get ég tekið undir alla hluti frekar en í fyrri ræðum hv. þingmanns, en þar voru þó margir ágætir punktar. Ég vil spyrja hv. þingmann hvort hún telji að þessi menntastefna geti raungerst, að hún geti orðið að veruleika með góðum árangri og með miklum krafti, með þeim fjárstuðningi sem kynntur er í fjármálaáætlun fyrir árin 2022–2026. Nú á fyrsta skrefið að koma eftir sex mánuði og er ekki sérstaklega gert ráð fyrir því í fjármálaáætlun sem samþykkt var núna í desember. Ég get ekki séð það, það eru alla vega engin sérstök fjárframlög. Telur hv. þingmaður að gera þurfi breytingartillögur við fjármálaáætlunina til að geta mætt þeim metnaðarfullu áformum sem koma fram í menntastefnunni eða telur hún að þetta rúmist allt saman innan áætlana? Í málasviðinu menning, listir, íþrótta- og æskulýðsmál er t.d. gert ráð fyrir 17 milljörðum á árinu 2022 en ekki nema 15 á árinu 2026, svo ég taki dæmi. Þar er lítil breyting á framlögum til framhaldsskóla, til háskóla og til annarra skólastiga. Það eru bara fjárframlög sem standa í stað yfir þetta fimm ára tímabil. Verðum við ekki að bæta úr því?