breytingar á ýmsum lögum tengdum málefnum sveitarfélaga.
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti með breytingartillögu um frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum tengdum málefnum sveitarfélaga (sveitarfélög og kórónuveirufaraldur). Þetta er nefndarálit frá umhverfis- og samgöngunefnd sem liggur fyrir á þskj. 1078 og þetta er mál nr. 478. Nefndin hefur fjallað um málið og fengið gesti á sinn fund og farið yfir þær umsagnir sem bárust varðandi málið. Með frumvarpinu eru lagðar til heimildir fyrir sveitarfélög til að víkja frá fjármálareglum sveitarfélaga til lengri tíma en nú er gert. Þá er lögð til rýmri heimild Lánasjóðs sveitarfélaga til lánveitinga til að mæta rekstrarhalla sveitarfélaga vegna kórónuveirufaraldursins og aukið svigrúm sveitarfélaga við innheimtu fasteignagjalda. Þá eru lagðar til breytingar á sveitarstjórnarlögum sem veita sveitarfélögunum svigrúm til að takast á við óvenjulegar aðstæður, svo sem vegna farsótta eða náttúruhamfara.
Ég ætla aðeins að koma inn á nokkra hluti sem fjallað er um í nefndarálitinu en vísa að öðru leyti til skriflegs nefndarálits.
Nefndinni bárust athugasemdir og ábendingar vegna b-liðar 3. gr. frumvarpsins þar sem lögð er til heimild fyrir sveitarfélög að lækka eða fella niður dráttarvexti á kröfur vegna fasteignaskatta sem lagðir eru á atvinnuhúsnæði á árunum 2020–2022 hjá gjaldendum sem eiga við verulega rekstrarörðugleika að stríða vegna kórónuveirufaraldursins eða gjaldendum sem leigja húsnæði til rekstraraðila sem sömu skilyrði eiga við, á grundvelli reglna sem sveitarfélög setja sér.
Ljóst er að sú heimild sem sveitarfélögum er veitt í frumvarpinu til að lækka eða fella niður dráttarvexti á kröfur vegna fasteignaskatta er almenns eðlis og veitir sveitarfélögum verulegt svigrúm til að útfæra reglur, skilyrði og viðmið vegna slíkrar framkvæmdar. Nefndin telur þó nauðsynlegt að ítreka að eingöngu er um að ræða heimild til setningar slíkra reglna og ber sveitarfélögum því ekki skylda til þess.
Nefndin er meðvituð um þau sjónarmið að seinkun á innheimtu fasteignaskatta og ákvarðanir um niðurfellingu eða lækkun dráttarvaxta kunna að hafa áhrif á rekstur sveitarfélaga, til að mynda vegna aukinnar lántökuþarfar, en hafa þarf í huga að markmið slíkrar aðgerðar er að aðstoða lífvænleg fyrirtæki sem hafa orðið fyrir verulegu tímabundnu tekjufalli til að halda sjó og tryggja þannig skatttekjur sveitarfélaga til lengri tíma. Er því mikilvægt að árétta að það er hlutverk sveitarstjórna að marka sér stefnu og taka ákvörðun um hvort rétt sé að setja slíkar reglur á grundvelli þess lýðræðislega umboðs sem þeim er veitt til að taka ákvarðanir um fjárhagsleg málefni sveitarfélaga.
Nefndin leggur áherslu á að ákveði sveitarstjórn að veita umræddar ívilnanir er jafnframt gert ráð fyrir, í ljósi þess svigrúms sem sveitarfélögum er veitt til setningar slíkra reglna, að hvert sveitarfélag leiti leiða til að framkvæmdin verði sem skilvirkust.
Að mati nefndarinnar er ekki þörf á að mæla sérstaklega fyrir um það í lagatexta að sveitarfélögum sé heimilt að kalla eftir gögnum frá Skattinum vegna tekjufallsstyrkja, enda geta sveitarfélög á grundvelli ákvæðisins kallað eftir öllum þeim gögnum sem þau telja nauðsynleg til að meta hvort umsækjandi eigi við verulega rekstrarörðugleika að stríða vegna kórónuveirufaraldursins.
Þá er komið inn á það að mögulegt sé að sveitarfélög geti sameinast um setningu reglna en þar sem aðstæður í hverju sveitarfélagi eru misjafnar telur nefndin þó mikilvægt að sveitarfélögum verði veitt endanlegt ákvörðunarvald á útfærslu þeirra reglna sem skulu gilda í hverju sveitarfélagi.
Nefndin leggur til tvær breytingartillögur tæknilegs eðlis við frumvarpið og þær hafa engin efnisleg áhrif og því óþarfi að rekja þær sérstaklega og þá leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt með þeim tveimur breytingum.
Undir nefndarálitið skrifa Bergþór Ólason og Vilhjálmur Árnason, sem voru fjarverandi við afgreiðslu málsins og skrifa undir álitið með heimild í 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fyrir fastanefndir Alþingis. Hanna Katrín Friðriksson skrifar undir álitið með fyrirvara sem hún hyggst gera grein fyrir og þá skrifa Ari Trausti Guðmundsson, Guðjón S. Brjánsson, Jón Gunnarsson, Karl Gauti Hjaltason og Kolbeinn Óttarsson Proppé undir álitið ásamt Líneik Önnu Sævarsdóttur framsögumanni.