151. löggjafarþing — 73. fundur,  24. mars 2021.

fjármálaáætlun 2022--2026.

627. mál
[17:04]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir athyglisvert svar þó að hann hafi ekki komið mikið inn á það sem þó er nefnt á nokkrum stöðum í greinargerð með áætluninni. Þar er talað um þann kerfislæga vanda sem er að það sé ekki næg framleiðni til að standa undir háum launum. En meira um það síðar.

Heilbrigðisráðherra tilkynnti í desember að leitað yrði eftir sérstökum fjárheimildum í fjármálaáætlun 2022–2026 til uppgjörs á halla Landspítala. Landspítalinn hefði staðið að óbreyttu frammi fyrir 4,3 milljarða hagræðingarkröfu í ár. Það er ekki orð um þetta samkomulag í fjármálaáætlun fyrir árið 2022–2026 sem nú er til umræðu en því var lofað að svo yrði. Hæstv. heilbrigðisráðherra sagði hér í ræðum um fjárlagafrumvarp 2021 að hallinn (Forseti hringir.) og hvernig hann yrði tekinn niður yrði ekki til þess að skerða þjónustu við sjúklinga. Á ekki að standa við þau orð?