fjármálaáætlun 2022--2026.
Virðulegi forseti. Það er í sjálfu sér þannig að halli eldri ára er bara liðin tíð og við erum með samkomulag í gangi um að standist spítalinn áætlanir sem kynntar hafa verið þá verði ekki gerð krafa um að hann verði unninn upp. Það er engin ástæða til að skrifa fyrir fram inn í fjármálaáætlun það uppgjör. Það stendur allt sem sagt hefur verið um þetta mál.
Aðeins um framleiðni og samhengi framleiðni í samfélaginu við laun. Ég átta mig ekki alveg á því hvað hv. þingmaður er að fara, að hnýta í athugasemdir í fjármálaáætluninni þar sem bent er á hversu miklu grundvallarmáli það skiptir að samstaða takist á íslenskum vinnumarkaði um að leggja áherslu á aukna framleiðni svo að við getum staðið undir því að vera hálaunaland. Þeir sem efast um þetta ættu, held ég, að fara aftur á byrjunarreit og spyrja sig: Hvað er það sem réttlætir kröfuna um há laun á Íslandi, ef ekki það að hér sé mikil verðmætasköpun, mikil framleiðni í þeim störfum sem unnin eru í landinu? Þetta eru bara grundvallarsannindi sem ég hélt að við þyrftum ekki að vera að deila um hér.