fjármálaáætlun 2022--2026.
Herra forseti. Það verður seint sagt að ríkisstjórnin hafi gengið mjög rösklega til verks í opinberum fjárfestingum þrátt fyrir miklar yfirlýsingar um annað. Það liggur fyrir að þær hafa dregist saman miðað við það sem ætlunin var og það sem áður var. Það er auðvitað mjög slæmt þegar einmitt er mikil þörf fyrir slíkar fjárfestingar. Þetta er líka svolítið sérkennilegt í ljósi þess að ríkisstjórnin, eins og ég sagði, hefur verið nokkuð dugleg við að lýsa yfir miklum áformum um opinberar fjárfestingar. Ég minnist þess sérstaklega að einn flokkur, sem ég trúi að hafi verið flokkur hæstv. fjármálaráðherra, lagði af stað fyrir síðustu kosningar með loforð um 100 milljarða í fjárfestingar. Það skýtur því skökku við að ríkisstjórnin skuli ekki hafa verið betur undirbúin en raun ber vitni og að framkvæmdarvaldið hafi verið svona illa í stakk búið til að hrinda opinberum fjárfestingum í framkvæmd í ljósi þess hversu mikilvægt verkfæri þetta er til að vinna upp á móti niðursveiflu í ríkisfjármálunum. Ég vil einfaldlega spyrja hæstv. fjármálaráðherra að því hvort honum þyki frammistaða ríkisstjórnarinnar í því að efna loforð um viðamiklar fjárfestingar, innviðafjárfestingar, beri vott um fyrirhyggju og góða hagstjórn núna þegar við stöndum frammi fyrir þessari miklu kreppu.