fjármálaáætlun 2022--2026.
Herra forseti. Þetta er bara gott að heyra. Ef hv. þingmaður les nú vel bls. 23 í fjármálaáætluninni mun hún átta sig á því um hvað ég er að tala. Það skiptir máli hverjar aðgerðir ríkisstjórnarinnar eru til þess að ýta undir vöxt, nýsköpun og þróun þeirra greina sem geta staðið undir háum launum. Það er nauðsynlegt að renna fleiri stoðum undir atvinnulífið og auðvitað skiptir ferðaþjónustan miklu máli. Hingað til a.m.k. hafa störf í ferðaþjónustunni ekki aukið mikið á framleiðnina, hvort sem það er hér á landi eða í öðrum löndum. Við erum að tala um mannaflsfreka grein sem borgar lág laun. Í þessu samhengi hljótum við að þurfa að horfa á aðgerðir ríkisstjórnarinnar, hvernig ýtt er undir greinar og hvernig greitt er fyrir þeirri góðu þróun sem ætti að vera sú að auka verðmætasköpun í landinu og skapa fleiri vel launuð störf, en að láglaunafólkið eigi ekki bara að taka á sig skellinn.
Mig langar í lokin, frú forseti, að spyrja hv. þingmann hvort hún geri ekki athugasemd við það þegar hæstv. fjármálaráðherra talar hér um hallann hjá Landspítalanum. Hann segir bara: Hallinn er fyrir bí, það þarf hvergi að koma fram. Er það svo að það sé ekki þingið sem er fjárveitingavaldið eða getur hæstv. fjármálaráðherra tekið sér það vald að skera niður halla hér og þar í kerfinu?