151. löggjafarþing — 73. fundur,  24. mars 2021.

fjármálaáætlun 2022--2026.

627. mál
[18:05]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég tek undir það að þær aðgerðir sem við þurfum að viðhafa, höfum viðhaft og höfum lagt gríðarlega fjármuni í þurfa að ýta undir vöxt þeirra greina sem geta skilað hærri launum, búa til fleiri stoðir eins og við höfum sagt. Í litlu samfélagi eins og okkar eru körfurnar oft of fáar, skellurinn verður dálítið stærri eins og við upplifum núna í tengslum við ferðaþjónustuna. Ég tek undir það að það er áhyggjuefni hversu lág laun eru greidd í ferðaþjónustunni. Það er eitthvað sem er ekki bara samfélagslegt hér, þetta er bara almennt í ferðaþjónustu víða um heim. Þessi mannaflsfreka grein, eins og hv. þingmaður sagði réttilega, borgar allt of lág laun. Ég veit ekki hvað skal segja en það er oft ungt fólk sem sækir í þessi störf, fólk sem er jafnvel að vinna með skóla og annað slíkt, þarna er oft vaktavinna og ýmislegt fleira, þetta er fólk af erlendum uppruna. Mér þykir þetta mikið áhyggjuefni og ég hef svo sem rætt það áður að þetta er mein sem þarf að laga. Ég veit ekki hvernig við gerum það öðruvísi en að gera góða samninga, þ.e. þeir sem eru að semja.

Varðandi hallann á Landspítala þá er hárrétt að það er Alþingi sem ákveður hvernig við förum með hann. Það tel ég að við í fjárlaganefnd eigum að taka til skoðunar þegar við fáum þetta plagg til okkar, hvernig við viljum fara með þá tölu. Eins og hér var sagt er ekki búið að ákveða þetta en það þarf að gera ráð fyrir þessu að mínu mati, þ.e. það er búið að ákveða þetta en ekki komin niðurstaða.