fjármálaáætlun 2022--2026.
Forseti. Fyrir ári hófst þessi faraldur og mótvægisaðgerðir ríkisstjórnarinnar fólust í því að fjármálaáætlun var seinkað. Það var svo mikil óvissa að ekki var hægt að setja stefnu til að komast út úr þeirri óvissu. Ég tel það vera hlutverk stjórnvalda að setja stefnu til þess að eyða óvissu en það var ekki gert. Fjármálaáætlun var seinkað. Hún var lögð fram síðastliðið haust, fjármálaáætlun 2021–2025, og var afgreidd fyrir jól. Undirliggjandi í þeirri fjármálaáætlun var hagspá frá október 2020. Sú hagspá gerði ráð fyrir ákveðnu atvinnuleysi og hagvexti og verðbólgu á árinu 2021. Í kjölfarið á því er einmitt samþykkt fjármálaáætlun og fjárlög til þess að koma til móts við þær tölur og, eins og hæstv. ráðherra talaði um áðan, til að gera betur. Núna er fjármálaáætlunin aftur lögð fram, í rauninni með óbreyttri stefnu efnislega á málefnasviðum. Fjárlögin og fjármálaáætlunin sem er í gildi og er verið að vinna eftir skilar verri horfum í þjóðhagsspá, þ.e. minni hagvexti, meira atvinnuleysi og meiri verðbólgu, lægra gengi. Þetta er afleiðing þess hver stefna stjórnvalda er, að hafa greinilega ekki náð að koma til móts við þær efnahagshorfur sem hafa þróast frá október þangað til núna. Af hverju erum við þá með óbreytta stefnu?