151. löggjafarþing — 73. fundur,  24. mars 2021.

fjármálaáætlun 2022--2026.

627. mál
[18:14]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni. Það er örugglega margt sem hefur áhrif á þjóðhagsspána, ekki bara aðgerðir stjórnvalda. Ég held t.d. að flestar þjóðir standi frammi fyrir því núna að þetta gengur erfiðlegar en flestir vonuðu og töldu hér fyrir jólin, þó að það sé ekki lengri tími en þetta, alveg eins og ég held að það hafi verið komið dálítið bjartsýniskast í Íslendinga, sem fá núna bakslag. Þannig að ég tel að það sé margt sem hafi þarna áhrif. Við búumst t.d. enn við ríflega 700.000 ferðamönnum sem þó er enn miðað við seinni partinn á þessu ári, ekki er gert ráð fyrir þeim fyrr. Kannski verður það ekki veruleiki og okkur líður örugglega mörgum þannig núna eftir tíðindi dagsins að það sé alla vega einhver skrekkur í okkur hvað það varðar.

Það hefur að sjálfsögðu áhrif á það sem við erum að fjalla um núna, varðandi fyrirsjáanlegt atvinnuleysi og að grípa of seint inn í, það er allt partur af þessu. Ég held að við höfum ekki endilega séð það fyrir okkur í ljósi þess sem ég var að segja, við vonuðumst til þess að á þessum tíma værum við aðeins farin að lyftast upp, að það væri farið að opnast, og þess vegna áttum við von á minna atvinnuleysi. Allt er þetta partur af því sem hefur svo áhrif á hvernig þjóðhagsspá hin nýrri lítur út. Það er að mínu mati ekki vegna þess að við vorum ekki nógu varkár, af því að við höfum auðvitað trúað því að við myndum ná utan um ástandið með bólusetningum og öðru slíku. En það er mjög margt sem hefur áhrif þarna á. Ég tek ekki undir það að við höfum alltaf gripið seint inn með allar aðgerðir. Jú, sannarlega í upphafi faraldursins, eðlilega, vegna þess að þá fengum við í fangið eitthvað sem við héldum að við myndum bara græja á örstuttum tíma. Flestir héldu það. En nú er hann orðinn langur. Við vitum auðvitað ekki enn hvernig faraldurinn mun þróast, hvort við verðum í sömu sporum eða hvort nýir þingmenn verði um næstu áramót að ræða nákvæmlega sömu mál og við.