fjármálaáætlun 2022--2026.
Frú forseti. Í fjármálaáætlun segir, með leyfi forseta: „Alþingi hefur því nýlokið afgreiðslu á ítarlegri umfjöllun um stefnumörkun opinberra fjármála …“ Nei, bara alls ekki. Ekkert í yfirferð þingsins var ítarleg umfjöllun um stefnumörkun opinberra fjármála. Eins og venjulega þá vantaði kostnaðargreiningu á stefnu stjórnvalda. Það vantaði ábatagreiningu á stefnu stjórnvalda og það vantaði í rauninni stefnu stjórnvalda. Punktur. En eins og forseti veit þá snýst ábatagreining um að stjórnvöld sýni okkur fram á það að stefna þeirra skili okkur fram á veginn og sé ekki tilgangslaus eyðsla á almannafé. Það vantaði líka nákvæmari forgangsröðun verkefna og það vantaði bara alla stefnu stjórnvalda, eins og ég sagði. Engin stefna um hvernig við ættum að vinna okkur út úr efnahagsáhrifum kófsins. Stjórnvöld skiluðu einfaldlega auðu og gera það enn því að þetta er sama fjármálaáætlun og síðast.
Áður en fólk byrjar að tala um alla milljarðana sem hafa verið notaðir í viðbrögðin við því ástandi sem kófið hefur valdið þá er stór hluti þeirra fjármuna sjálfsögð viðbrögð, þ.e. atvinnuleysisbætur, hlutabætur og svoleiðis, eitthvað um 65 milljarðar kr. þar. Til viðbótar voru ýmis úrræði sem voru alls ekkert sjálfsögð eins og uppsagnarstyrkir upp á rúma 10 milljarða og aðrar ráðstafanir um 44 milljarðar miðað við stærstu stuðningsúrræði ríkisstjórnarinnar, samanber rammagrein 2 á bls. 32 í fjármálaáætlun.
Í áætluninni segir, með leyfi forseta:
„Alþingiskosningar fara fram í september næstkomandi. Það felur í sér að tímabil fjármálaáætlunar fellur til á kjörtímabili næstu ríkisstjórnar og að næsta fjárlagafrumvarp, sem tekur til fyrsta árs áætlunarinnar, verður lagt fram af hálfu nýrrar ríkisstjórnar og mun byggjast á nýrri fjármálastefnu sem mun þurfa að leggja fram samhliða því.“
Já, það er alveg rétt og með þessari fjármálaáætlun er núverandi ríkisstjórn einfaldlega að segja að hún ætli ekki að taka þátt í þeirri stefnu sem þarf að setja eftir næstu kosningar. Þessi ríkisstjórn getur ekki einu sinni sett stefnu út þetta kjörtímabil. Fyrir ári síðan frestaði ríkisstjórnin framlagningu fjármálaáætlunar af því að það var svo mikil óvissa. Það er stórkostlega merkilegt því að það er hlutverk stjórnvalda að setja stefnu og eyða óvissu. Það kom svo augljóslega í ljós þegar stjórnvöld lögðu loks fram fjármálaáætlun að þau höfðu enga stefnu. Stjórnvöld voru að bregðast við jafnóðum í stað þess að leggja veg fyrir okkur öll út úr faraldrinum. Það voru engar áætlanir um hvernig ætti að koma til móts við vaxandi atvinnuleysi. Það voru engar áætlanir um uppbyggingu til framtíðar. Í þessari fjármálaáætlun sjáum við það sama, stefnuleysið aftur.
Í þessari fjármálaáætlun er svo sem ágætisumfjöllun um núverandi stöðu hagkerfisins og áskoranirnar fram undan, pínu gildishlaðið á köflum, en allt í lagi, það ber að hrósa fyrir þá umfjöllun, en það er nákvæmlega ekkert fjallað um hver stefna stjórnvalda er út úr þessu ástandi, ekkert nema það sem í raun skein í gegn en var ósagt: Stjórnvöld voru einfaldlega bíða eftir að faraldurinn kláraðist til að ferðaþjónustan gæti aftur orðið sá bjargvættur sem hún var í síðasta hruni.
Ég hefði haldið að þeir stjórnmálaflokkar sem eru hér við stjórn myndu keppast við að segja okkur öllum hvernig þeir ætli að redda málunum svona stuttu fyrir kosningar en þau eru augljóslega svo ósammála að afurðin er ekki neitt. Með leyfi forseta: „Áætlunin gerir ráð fyrir að aðstæður verði til þess að draga hratt úr sértækum stuðningi hins opinbera árið 2022.“ Allt í lagi, segjum að það sé satt og sviðsmyndir um aukinn ferðamannafjölda standist sem og allt annað. Við erum samt í þeim aðstæðum að vera með ansi miklar skuldir sem við þurfum að taka tillit til. Markmið ríkisstjórnarinnar birtist okkur ljóslifandi í áætluðum ráðstöfunum upp á 102 milljarða sem eru, með leyfi forseta, „ekki útfærðar niður á einstaka tekjustofna á tekjuhlið eða málefnasvið á útgjaldahlið í þessari fjármálaáætlun“. Ríkisstjórnin veit sem sagt hvaða aðstæður þarf að glíma við en leggur ekkert til málanna og ber fyrir sig þá afsökun að það verði kosningar fyrst.
Í fyrra þegar faraldurinn hófst var svo mikil óvissa að það þurfti að fresta framlagningu fjármálaáætlunar. Í ár er ekki einu sinni gerð fjármálaáætlun fyrir næsta ár. Í fyrra vissi ríkisstjórnin ekki hvaða stefnu átti að taka og í ár gefst hún einfaldlega upp og hættir. Í fjármálaáætluninni í ár er ríkisstjórnin að leggja skóna á hilluna og segja að stefna næsta árs ráðist í kosningum í haust en það er ekki stefna sem ríkisstjórnin setur núna í fjármálaáætlun, sem er skjalið sem ríkisstjórnin notar til að leggja fram stefnu sína, monta sig af því hvað hún ætli að gera æðislega hluti. Nei. Kannski finnst einhverjum það mjög eðlilegt. En ef það væri svo að ríkisstjórnin hefði einhverja framtíðarsýn myndi hún leggja fram þá sýn núna og myndi monta sig af henni og sýna að hún væri traustsins verð eftir næstu kosningar. En í staðinn skilar ríkisstjórnin auðu og skilur allt og alla eftir í þeirri óvissu sem var svo ómöguleg fyrir ári síðan að það væri ekki hægt að setja neina stefnu. Óvissan fyrir næsta ár er ekki til komin vegna heimsfaraldurs núna heldur vegna ábyrgðarleysis núverandi ríkisstjórnar.
Það er í raun tilgangslaust að fjalla um þessa fjármálaáætlun. Það er einfaldlega tímasóun því að ríkisstjórnin lagði enga vinnu í þessa áætlun. Þau nenntu ekki að uppfæra stefnu málefnasviða og láta duga að segja að það sé fyrirséð að grípa þurfi til ráðstafana á tekju- og útgjaldahlið ríkissjóðs á árunum 2023–2026 en skila auðu í því hvernig eigi að gera það vegna þess að það er ekki þessi ríkisstjórn sem ætlar að gera eitthvað í þeim málum. Og vegna þess að ríkisstjórnin leggur ekki til neina stefnu fyrir næstu fimm árin er algerlega tilgangslaust að rýna í stefnu sem er ekki til.
Það sem hægt er að gera er að fjalla um stöðuna sem ríkisstjórnin vill ekki takast á við, stöðuna sem ríkisstjórnin er búin að búa til með 12% atvinnuleysi og 4% verðbólgu. Það er svo merkilegt að ríkisstjórnin monti sig af hinum ýmsu mótvægisaðgerðum þegar þetta er niðurstaðan. Við höfum svo sem heyrt þau segja að staðan væri annars verri. Það kemur nákvæmlega ekkert á óvart. Það er nákvæmlega enginn sem sagðist ekki ætla að gera neitt. Allir voru með tillögur um hvað væri hægt að gera til að mæta því ástandi sem hefur myndast vegna faraldursins. En sama hvað ríkisstjórnin ákvað að gera segja þessar tvær tölur allt sem segja þarf; rúmlega 12% atvinnuleysi og rúmlega 4% verðbólga. Það hafa aldrei verið jafn margir atvinnulausir á heilu ári á þessari öld, samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar.
Ég skal segja ykkur smá leyndarmál. Það láta allir eins og hagstjórn sé rosalega flókið mál. Það er gert með því að bæta við alls konar tormeltum orðum eins og hagsveifluleiðréttur frumjöfnuður eða launavísitala, sem sýnir samt ekki launaþróun samkvæmt lögum um almannatryggingar en gerir það samkvæmt rannsóknum verkalýðsfélaga, sem er áhugavert. Hagstjórn er í rauninni mjög einföld því hún snýst um að fólk hafi þak yfir höfuðið og geti lifað mannsæmandi lífi. Það sem er kannski flókið er hvernig á að ná sem mestum árangri í slíkri hagstjórn. Markmiðið er augljóst. Aðferðirnar eru kannski flóknari. Þegar maður ætlar að setja fram einhverjar aðgerðir þá leggur maður fram stefnu um hverjar þær aðgerðir eiga að vera, t.d. í fjármálaáætlun. En nei, það er ekkert, ekki neitt.
Verkefnið er einfalt en það að ná eins góðum árangri og hægt er er erfitt. Í því ljósi verðum við að skoða þennan árangur ríkisstjórnarinnar, það er mesta atvinnuleysi aldarinnar af þeirri einföldu ástæðu að ríkisstjórnin bjóst við stuttum faraldri og að ferðaþjónustan myndi ná sér á ný. Það þýddi að stefna stjórnvalda í faraldrinum var að bíða þangað til að hann kláraðist og metfjöldi af fólki átti að bíða í atvinnuleysi á meðan. Ríkisstjórnin stærir sig af gríðarlegum mótvægisaðgerðum á sama tíma og það er metatvinnuleysi. Hvernig er hægt að monta sig af því? Ef fólk er að velta fyrir sér hvernig falsfréttir virka og verða til þá þarf það bara að horfa á aðgerðir ríkisstjórnarinnar annars vegar, hvað þau segja að allt gangi vel og hins vegar hver staðan er á vinnumarkaði.
Við stöndum frammi fyrir þörf upp á rúmlega 100 milljarða afkomabætandi aðgerðir á árunum 2023–2025 samkvæmt fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar, ríkisstjórnar sem útskýrir bara vandann en leggur ekki til lausnir. Það er alveg örugglega af því að ríkisstjórnarflokkarnir eru ekki sammála um hvernig eigi að taka á þeim vanda og vilja leita til almennra kosninga eftir stuðningi fyrir lausnum sínum hver í sínu lagi. Það þýðir óhjákvæmilega að þessi ríkisstjórn mun ekki starfa saman á næsta kjörtímabili nema einhverjir flokkanna muni svíkja kosningaloforð sín. Ef eitthvað er þá eru þetta merkilegustu upplýsingarnar sem koma fram í fjármálaáætlun. Þessi ríkisstjórn er búin að leggja skóna á hilluna og vinnur í rauninni bara sem starfsstjórn í dag. Þá verður maður að spyrja: Til hvers í ósköpunum þurfum við að bíða fram á haust eftir að fá nýja ríkisstjórn?