fjármálaáætlun 2022--2026.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni fyrir að koma hér upp og setja fram spurningar en mér fannst þær bera keim af því að það væri bara allt ómögulegt, og hann setur þá kröfu á mig að reyna að réttlæta einhverja hluti í heildarsamhengi. Ég fór ágætlega yfir það í minni ræðu, hv. þingmaður. Ég rifjaði upp stefnuna sem býr að baki þessari áætlun. Ég fór yfir það hvað felst í þessari áætlun. Ég fór yfir það að hún hefði tengingu við áætlun sem við samþykktum í desember og er vísað í hér. Ég fór yfir fjármálastefnuna sem við endurskoðuðum við mjög erfiðar aðstæður, tilneydd, og ég rakti hvernig þetta hangir saman eins og lög um opinber fjármál kveða á um. Það kann vel að vera að hv. þingmanni finnist þetta allt saman ómögulegt en ég er alveg til í að svara spurningum.
Varðandi eftirfylgni með framkvæmd fjárlaga, já, við höfum eytt tíma í það og við höfum fengið skýrslu frá Ríkisendurskoðun og við höfum fengið fjármála- og efnahagsráðuneytið á okkar fund og fengið skýrslu þaðan um hvernig þessu hefur undið fram það sem af er ári. Ef hv. þingmaður getur bent mér á hvað við getum gert betur í því þá er ég alltaf tilbúinn til að hlusta. Ég ber miklu meiri virðingu fyrir bæði störfum hv. fjárlaganefndar og Alþingis en svo að mér finnist þetta bara allt saman marklaust og ómögulegt. Nú er þingið að fá þessa þingsályktunartillögu og fjárlaganefnd til að vinna með hana og ég hef bara meiri trú á okkar störfum en svo að ekkert kom út úr því, eins og mér fannst einhvern veginn blasa við í andsvari hv. þingmanns.