151. löggjafarþing — 73. fundur,  24. mars 2021.

fjármálaáætlun 2022--2026.

627. mál
[18:40]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vísaði í efnislega óbreytt málefnasvið. Við fjölluðum um efni málefnasviðanna með ráðuneytunum, fagráðuneytunum, fyrir jól, um nákvæmlega þá stefnu sem birtist þar. Það er ekkert að breytast þar. Þurfum við að hitta þau aftur vegna málefnasviða sem eru ekkert breytt? Það var það sem ég spurði um. Mér finnst það ekkert óeðlileg spurning. Það er ýmislegt annað hérna varðandi efnahagshorfur o.s.frv. sem við getum tvímælalaust fundað um. Ég var ekki að spyrja um það. Mér finnst þetta ekki vera góð stefna út af ástæðum sem ég rakti í andsvari við hæstv. fjármálaráðherra. Þrátt fyrir hagspá sem kom fram fyrir stefnuna sem þessi áætlun byggir á þá varð hún verri þrátt fyrir stefnuna. Mér finnst það vera augljóst dæmi um að stefnan er ekki að virka og af hverju er henni þá ekki breytt?