fjármálaáætlun 2022--2026.
Herra forseti. Hv. þingmaður fór yfir það í ræðu sinni hversu ábyrg og skynsamleg honum finnst þessi áætlun vera og stefna hæstv. ríkisstjórnar. Ég vil spyrja hv. þingmann hvort honum finnist það í raun skynsamlegt og ábyrgt á miklum álagstímum í heilbrigðiskerfinu í miðjum heimsfaraldri og þegar við horfum fram á öldrun þjóðarinnar að gerð sé krafa af hálfu ríkisstjórnarinnar um aðhald í heilbrigðiskerfinu frekar en myndarlega innspýtingu. Það er gerð krafa um aðhald í heilbrigðiskerfinu í ár og sama krafa á næsta ári samkvæmt þeirri áætlun sem við ræðum hér. Það eru líka gerðar aðhaldskröfur á öldrunarstofnanir og skóla á árinu 2022. Finnst hv. þingmanni þetta vera ábyrgt og skynsamlegt í miðjum heimsfaraldri og þegar öldrun þjóðarinnar er fram undan? Hjúkrunar- og endurhæfingarþjónusta lækkar samkvæmt áætluninni um rúm 4% en þó vitum við bæði, ég og hv. þingmaður, að við erum þar í heilmiklum vanda og þegar kemur að rekstri hjúkrunarheimila og allri umgjörð um aldraða þá er það í miklum lamasessi. Þarna er áætlun sem hv. þingmaður er mjög ánægður með og telur vera mjög skynsamlega en hún gerir einmitt ráð fyrir þessu. Hvað vill hv. þingmaður segja um það?