151. löggjafarþing — 73. fundur,  24. mars 2021.

fjármálaáætlun 2022--2026.

627. mál
[19:28]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Við erum að tala um fjármálaáætlun þar sem stefna stjórnvalda er lögð fram. Mig langar til að prófa aftur það sem ég hef verið að fjalla um í andsvörum og í ræðum. Þegar stjórnvöld leggja fram fjármálaáætlun sem stefnu sína um það sem þau ætla að gera betur á komandi mánuðum og árum þá byggist hún á þjóðhagsspá, eins og hefur alltaf verið sagt. Við byggjum okkar áætlun og þær tölur sem við erum með á þjóðhagsspá, sama þó að ýmsar aðrar spár séu til um það hvernig hitt og þetta þróast á komandi mánuðum og árum. Maður myndi ætla að í núverandi ástandi þar sem vandamálið er atvinnuleysi, og þegar síðasta fjármálaáætlun var lögð fram var fyrirsjáanlega vandamálið atvinnuleysi, myndi stefna stjórnvalda bæta aðstæður hvað það varðar. Þegar við sjáum þá þjóðhagsspá sem var lögð fram í október á síðasta ári, áður en sú stefna sem við fjöllum í raun hér um var samþykkt í desember — þ.e. stefna málefnasviðanna, sem er óbreytt, stefna stjórnvalda er efnislega óbreytt — myndi maður ætla að það gæfi betri þjóðhagsspá núna þegar menn eru byrjaðir að fara eftir þeirri stefnu það sem af er árinu 2021, en horfurnar hafa versnað. Ég veit að niðurstaðan getur síðan verið betri en spáð er fyrir um í fjármálaáætlun og fjárlögum, að afkoman verði að lokum betri. (Forseti hringir.) En ég er að segja að horfurnar hafi versnað þrátt fyrir stefnu stjórnvalda. Af hverju erum við þá með óbreytta stefnu?