151. löggjafarþing — 73. fundur,  24. mars 2021.

fjármálaáætlun 2022--2026.

627. mál
[19:31]
Horfa

Haraldur Benediktsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég hef heyrt þetta andsvar hans hér fyrr í dag. Þá langar mig kannski að gera sömu tilraun og margir aðrir hafa gert þegar hann ber saman þjóðhagsspá frá í haust og þjóðhagsspána núna og segir að tölurnar séu lakari í þjóðhagsspánni núna og reyna enn og aftur að draga það fram að í þjóðhagsspánni í haust var kannski af varfærni áætlað að landsframleiðsla yrði minni en raunin varð og þess vegna er eðlilegt að prósentustigstala áætlunarinnar núna sé lægri. Ég held að annað hefði kannski verið fullmikill happdrættisvinningur. Meira máli skiptir að upplýsa um það að þegar við komum með hærri landsframleiðslu inn í þetta ár þá skiptir það í raun og veru grundvallarmáli. Um atvinnuleysið má segja, sem ég sagði í minni ræðu að væri meinið sem við þyrftum að kljást við, að sú staða sem er uppi í okkar samfélagi núna snýr kannski fyrst og fremst að einni atvinnugrein sem er ferðaþjónusta. Við vonumst eftir að hún rétti úr kútnum með þeim aðgerðum sem við höfum gripið til til að reyna að vernda framleiðslutækin og halda utan um fyrirtækin þannig að þau geti þreyjað þessa kreppu með ýmsum aðgerðum. Ég vona að raunin verði sú að þau verði þá tilbúin til þeirrar viðspyrnu sem við þurfum á að halda og vonandi fyrr en síðar.