151. löggjafarþing — 73. fundur,  24. mars 2021.

fjármálaáætlun 2022--2026.

627. mál
[19:39]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Haraldi Benediktssyni fyrir svörin. Í fyrri fjármálaáætlun var gert ráð fyrir 900.000 ferðamönnum til landsins en nú er gert ráð fyrir að sá fjöldi lækki í 720.000. Þetta var sagt áður en núgildandi ráðstafanir voru gerðar og áður en fjórða bylgjan, sem er að fara af stað, skall á. Þannig að ég sé ekki annað en að þessi fjármálaáætlun sé þegar komin í algjört uppnám. Þar af leiðandi nær maður eiginlega ekki utan um það hvernig á að sjá til þess að eitthvert vit verði í henni. Þetta er eiginlega óskrifað blað vegna þess að við vitum ekki hvaða afleiðingar þessi fjórða bylgja gæti haft og hvað það hefði í för með sér ef hún færi algerlega á fullt.

Í sambandi við þá sem verst hafa það er alltaf hægt að segja að bætt hafi verið rosalega í fyrir þá, en þá er oftast verið að tala um prósentutölur og prósentuhækkun á rosalega lágar bætur eða lífeyrislaun þessara einstaklinga, sem eru svo lágar upphæðir að það munar engu. Fyrir fólk sem er langt undir fátæktarmörkum er 3.000, 4.000 eða 5.000 kr. hækkun bara eitt lambalæri, í mesta lagi það. Það er ekki nema plástur á sárið. Það þarf að gera betur. Nú er ríkisstjórnin búin að vera við völd í fjögur ár og það er óskiljanlegt að ekki skuli vera búið að gera betur vegna þess að það var á stefnuskrá allra þessara flokka að gera betur.