fjármálaáætlun 2022--2026.
Herra forseti. Það er óneitanlega svolítið sérkennilegt að ræða þessa fjármálaáætlun nú, það er dálítið eins og að leika á hörpu á meðan efnahagskerfið brennur, því að framtíð íslensks efnahagslífs er í einstakri óvissu. Síðast í dag, bara fyrir nokkrum klukkutímum, tilkynnti ríkisstjórnin um grundvallarbreytingar á þeim forsendum sem liggja til grundvallar. En hitt er að þetta er áætlun fyrir næsta kjörtímabil þegar verður önnur ríkisstjórn. Hugsanlega segir þetta okkur eitthvað um hvert þessi ríkisstjórn, stjórnarflokkarnir vilja stefna. Það væri áhugavert að heyra álit hæstv. forsætisráðherra á því hvort þetta sé á ábyrgð allra stjórnarflokkanna, hvort þetta sé sameiginleg forgangsröðun þeirra, því að það vantar óneitanlega margt í þessa stefnu og margt til að takast á við þær aðstæður sem nú eru uppi. Til að mynda er algerlega óljóst með hvaða hætti þeir flokkar sem mynda núverandi ríkisstjórn ætla sér að spara, eða eru yfir höfuð einhverjar hugmyndir uppi um það? Ríkisstjórnin hefur eytt heilmiklu fjármagni, hafði mikið til ráðstöfunar þegar hún tók við og óvíða og líklega hefur vöxtur báknsins hvergi verið eins mikill og einmitt í forsætisráðuneytinu. Ég tel að það sé óhætt að segja að aldrei á lýðveldistímanum hafi nokkurt ráðuneyti vaxið eins hratt og forsætisráðuneytið í tíð þessarar ríkisstjórnar.
Hvar ætlar þessi stjórn að spara? Hvernig ætlar hún að bregðast við því ástandi sem nú er uppi, sem virðist því miður ekki vera lagast? — Nú geri ég athugasemd, herra forseti, við það að hafa einungis fengið tvær mínútur til ráðstöfunar. Ég hefði viljað hafa hundraðfalt (Forseti hringir.) fleiri en ég geri mér grein fyrir því að hæstv. forseti getur ekki veitt mér aukatíma.