151. löggjafarþing — 73. fundur,  24. mars 2021.

fjármálaáætlun 2022--2026.

627. mál
[20:01]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni. Við erum sammála um að langtímaatvinnuleysi er stærsta viðfangsefnið, stærsti vandinn. Á því þarf að sigrast og það má ekki verða langtímaböl í samfélagi okkar. Ég tel að þær aðgerðir sem við höfum ráðist í, bæði með beinum fjárfestingum, sértækum vinnumarkaðsaðgerðum, tækifærum til að sækja sér nám fyrir þau sem misst hafa vinnuna, séu allt aðgerðir sem munu tryggja að viðspyrnunni verði hraðað. En ég tel líka að þeir styrkir og sá stuðningur sem við höfum veitt fyrirtækjum í landinu, litlum og meðalstórum fyrirtækjum, til að geta haldið áfram starfsemi, til að geta áfram haft fólk í vinnu, sé líka gríðarlega mikilvæg aðgerð til að sporna gegn atvinnuleysinu. Ég tel að sú ákvörðun okkar að fara ekki í niðurskurð á velferðarkerfinu og ekki í niðurskurð í menntakerfinu, ekki í niðurskurð í heilbrigðiskerfinu, sé líka mjög mikilvæg vísbending um að við ætlum að verja þessi kerfi og þá mikilvægu þjónustu sem þau veita og þau störf sem þar eru.

Ég tel að allar þær aðgerðir sem ég lýsti, þ.e. að verja þessi kerfi, fara í aukna fjárfestingu, fara í beinar vinnumarkaðsaðgerðir þar sem við stefnum að því að getað skapað allt að 7.000 störf með því að styðja við fyrirtæki, með því að styðja við stofnanir, frjáls félagasamtök, til að ráða fólk af atvinnuleysisskrá og koma því út í samfélagið og á vinnumarkaðinn, eins og hv. þingmaður er að segja, muni verða til þess að hraða þessari viðspyrnu. Síðan verður að sjálfsögðu ekki litið fram hjá því að eftir því sem bólusetningu vindur fram mun það hafa mikil efnahagsleg áhrif á samfélagið. Þær aðgerðir sem við höfum ráðist í hafa borið árangur. Þær hafa borið þann árangur að við sjáum minni samdrátt en við sáum fyrir og við stöndum betur að vígi en áður var talið til þess einmitt að spyrna frá.