fjármálaáætlun 2022--2026.
Forseti. Ég skil að það er að sjálfsögðu erfitt að reikna þessar breytur inn í fjármálaáætlun, en það er einmitt gott að eiga samtal um að með breytum sem þessum verður lítið úr svona áætlun. Þetta eru bara of miklir breytingatímar til að sá rammi haldi sem búinn var til þegar verið var að hugsa um að búa til fjármálaáætlun. En það er gott að búa til áætlanir. Napóleon Bónaparte sagði að hann hefði ekki fylgt einni einustu enda hefðu gjörbreyst öll áform hans um alla bardaga sem hann hefði farið í. En hann skipulagði samt alla bardaga sína mjög vel fyrir fram til að vita hvað skipti máli í dyn bardagans og geta þar af leiðandi tekið ákvörðun til að bregðast við. En það er mikilvægt að fólk sem er að fylgjast þessari umræðu og við hérna áttum okkur á því að allt gjörbreytist með því að eitt afbrigði geri bóluefni minna virkt, eitt afbrigði sé meira smitandi sem þýðir það að hjarðónæmið rýkur upp o.s.frv. Við þurfum að ræða það.
Ástæðan fyrir því að ég nefni þetta er að í upphafi faraldursins þegar við vorum að ræða fyrsta björgunarpakkann og ég ræddi þetta í matsalnum þegar menn voru að leggja þetta fram var hugmyndin sú að þetta yrði bara búið í maí. Það var náttúrlega ljóst, ef maður hefði aðeins fylgst með umræðunni úti í heimi, að það myndi líklega ekki verða raunin, sem varð líka önnur. Það er nauðsynlegt að við tökum þessa umræðu hér hvað þetta varðar.
Við þurfum að halda áfram umræðu um mögulegar sviðsmyndir inn í framtíðina, hvernig þetta lítur út. Ef þetta gerist, þessar stökkbreytingar sem eiga sér stað núna með brasilíska afbrigðinu og breyta grundvellinum fyrir bóluefnanotkun og jafnvel notkun þeirra bóluefna sem við höfum og aðgengi að því bóluefni sem hafði minnsta virkni af þeim sem við höfum verið að nota — það virðist vera að virknin sé mögulega að minnka þar — þá gjörbreytir það stöðunni í framtíðinni. Ég tala nú ekki um ef það verða einhverjar öflugar stökkbreytingar. Það þýðir að við þurfum að bregðast við. (Forseti hringir.) Við gerum það kannski ekki í fjármálaáætlun núna en við þurfum að bregðast mjög hratt við hérna í þinginu varðandi það hvernig við ætlum að nálgast þessi mál. (Forseti hringir.) Og þá er gott að hafa þessar sviðsmyndir skýrar fyrir framan okkur. (Forseti hringir.) Ég hvet til þess að forsætisráðherra fari að skoða þessar sviðsmyndir varðandi það ef bóluefni virka ekki og staðan fer að breytast.