151. löggjafarþing — 73. fundur,  24. mars 2021.

fjármálaáætlun 2022--2026.

627. mál
[20:20]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Í fyrsta lagi vil ég segja, af því að þingmaðurinn ræðir um þessa þróun á kjörtímabilinu, að það er vissulega rétt að það hafa verið krefjandi tímar til langtímaáætlanagerðar á kjörtímabilinu, ekki bara út af heimsfaraldri. Við skulum bara segja það eins og það er. Það varð mikið áfall fyrir ferðaþjónustuna og fluggeirann þegar WOW-flugfélagið fór á hausinn. Það hafði veruleg áhrif. Og eins og ég sagði áðan þá skiptir auðvitað máli að við drögum lærdóm af reynslunni og það skiptir máli, þegar auknum stöðugleika hefur verið náð aftur í ríkisfjármálum, að við ræðum það og förum yfir þessa reynslu og metum hvort gera þurfi ráð fyrir því í lögum um opinber fjármál að við séum með meiri sveigjanleika í áætlanagerð. Ég styð það að sjálfsögðu að við gerum langtímaáætlanir. Ég held að það auki gagnsæi og ég held að það auki lýðræðislega umræðu og auki skilning á því hvernig við verjum fjármunum og leggi ákveðna ábyrgð á herðar framkvæmdarvaldinu þannig að það þurfi að standa fyrir máli sínu gagnvart Alþingi, sem fer með fjárstjórnarvaldið, um hvað það hyggst gera. En það er hins vegar fullt tilefni til að ræða hvort við teljum að aukinn sveigjanleika þurfi í þessari áætlanagerð í ljósi reynslunnar, sem er ekki bara heimsfaraldurinn.

Fjárfesting í hagtölum. Bent hefur verið á það hér í þessum sal að opinber fjárfesting sé ekki að aukast að ráði. Því er til að svara að fjárfesting ríkisins er að aukast sem hluti af opinberri fjárfestingu sem er auðvitað bæði fjárfestingar ríkis og sveitarfélaga. Það eru hins vegar fleiri skýringar á þessu. Fjárfestingarátakið 2020–2025, sem ég nefndi það áðan, nemur 119 milljörðum. Þar leggst mestur þungi á árin 2021 og 2023, það er meiri þungi á þeim árum en á nýliðnu ári, 2020. (Forseti hringir.) Síðan túlkar Hagstofan fjárfestingu með aðeins öðrum hætti (Forseti hringir.) en við gerum endilega í stjórnmálum. Ég kem nánar að því á eftir.