151. löggjafarþing — 73. fundur,  24. mars 2021.

fjármálaáætlun 2022--2026.

627. mál
[21:55]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg):

Virðulegur forseti. Fyrir liggur frumvarp sem verið hefur í samráðsgátt um breytingu á lögum á sviði fiskveiðistjórnar sem taka á eftirlitshlutverki Fiskistofu. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar er m.a. talað um að bregðast við og halda heildaraflahlutdeild einstakra útgerða undir lögbundinni hámarkshlutdeild. Tilgangur þeirra laga var að einstök fyrirtæki gætu ekki orðið það stór að það kæmi í veg fyrir eðlilega samkeppni og leiddi til samþjöppunar, eins og raunin hefur orðið. Mikilvægi eftirlits Fiskistofu varðandi það að framfylgja þessum lögum er mikið, eins og komið hefur fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar hvað varðar kvótaþakið og eftirlit með vigtun og brottkasti. Að mati Ríkisendurskoðunar þarf að ráðast í margs konar úrbætur svo Fiskistofa geti sinnt þessu eftirlitshlutverki sínu með sem bestum hætti. Þar er m.a. nefnt að fjölga þurfi eftirlitsstarfsmönnum, en samkvæmt skýrslunni er eftirlit stofnunarinnar með auðlindanýtingu hafsins og samþjöppun aflaheimilda veikburða og ekki samkvæmt vilja Alþingis. Lagðar voru til 11 tillögur til úrbóta sem sneru að eftirliti með vigtun, brottkasti og samþjöppun. Ég vil spyrja hæstv. ráðherra um þessar tillögur og gagnrýni Ríkisendurskoðunar: Hefur þeim hefur verið mætt? Hefur verið tryggt nægt fjármagn til að Fiskistofa geti sinnt þessu eftirlitshlutverki sínu og eflt það eins og best verður á kosið?