151. löggjafarþing — 73. fundur,  24. mars 2021.

fjármálaáætlun 2022--2026.

627. mál
[21:58]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Kristján Þór Júlíusson) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni spurninguna. Þegar spurt er hvort eftirlitið sé eins og best verður á kosið vil ég svara því að ég tel að svo sé í öllum meginatriðum. Auðvitað eru alltaf skiptar skoðanir um eftirlitið. Bæði finnst sumum sem verða fyrir því menn stundum ganga of hart fram á meðan aðrir halda því fram að eftirlitið sé ekki nægt. Það er bara eðli málsins samkvæmt hin eilífa og sama saga um eftirlit, hvaða nafni sem það nefnist, hvort það er Fiskistofa eða eitthvað annað, og alltaf hafa einhverjir eitthvað til síns máls.

Varðandi nægt fjármagn til Fiskistofu væri auðveldast fyrir ráðherra málaflokksins að segja: Nei. En ég þigg það alveg með þökkum að Alþingi láti meiri fjármuni renna til þessa málaflokks. Það munu allir ráðherrar svara slíkum spurningum með jái ef það stendur til boða. Meðan Alþingi setur rammann eru fyrirmæli mín til stofnananna alltaf þau að við fylgjum þeim ramma sem þingið, löggjafinn, setur okkur og við verðum þá bara að forgangsraða innan þeirra fjárheimilda sem okkur eru veittar þar.

Eins og hv. þingmaður nefndi þá erum við með skýrslu Ríkisendurskoðunar um fiskveiðieftirlitið og hefur staðið yfir vinna í alllangan tíma á grundvelli þeirra tillagna sem þar voru gerðar. Ein megintillagan var sú að skýra hugtökin raunveruleg yfirráð og tengdir aðilar, vegna þess að Fiskistofa hafði kallað eftir því í rúman áratug og aldrei verið brugðist við því fyrr en núna. Við erum að reyna að koma því í frumvarp sem við getum vonandi lagt fyrir þingið á næstu dögum. Það er rétt, þetta er svona meginatriði fyrir fiskveiðieftirlitið til að geta tryggt það að mati eftirlitsstofnunarinnar að hafa raunverulegt eftirlit með því að ákvæði laga um hámarkshlutdeildina séu virt. Við höfum stefnt að því að búa textann þannig úr garði að eftirlitið eigi hægara með það en hingað til hefur verið.