fjármálaáætlun 2022--2026.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Eftirlit Fiskistofu með yfirráðum tengdra aðila byggist á því í dag að það koma tilkynningar frá handhöfum aflaheimilda. Athugun Fiskistofu fer fram tvisvar á ári. Fram kom í skýrslu Ríkisendurskoðunar að ekki sé verið að kanna raunveruleg yfirráð með markvissum hætti. Ríkisendurskoðun telur að skortur sé á úrræðum og viðurlögum og að endurskoða þurfi lög um hámarksaflahlutdeild. Ég tek undir það og eins nauðsyn þess að endurskoða hámarkshlutdeildina svo hægt sé að koma böndum á þá miklu samþjöppun sem er í skjóli krosseignartengsla skyldra og tengdra aðila, eins og hæstv. ráðherra kom inn á. Ég tel það gott að sjávarútvegsráðuneytið hafi verið að taka þessi mál til skoðunar og sett á fót starfshóp. Frumvarp liggur fyrir sem á að mæta athugasemdunum í skýrslunni. Ég tel að það séu ríkir almannahagsmunir undir að hafa sem best eftirlit með umgengni og nýtingu sjávarauðlindarinnar, að hún sé traust og að tryggðar séu sjálfbærar og ábyrgar veiðar. Það er í raun ólíðandi að svindlað sé á vigtun afla eða að brottkast líðist og að um ólöglega samþjöppun aflaheimilda sé að ræða. Þess vegna undirstrika ég að það er mikilvægt að Fiskistofa geti sinnt eftirlitshlutverki sínu svo við getum brugðist við athugasemdum Ríkisendurskoðunar, sem ég tel að sé að vænta í því frumvarpi sem hæstv. ráðherra nefndi hér.