fjármálaáætlun 2022--2026.
Virðulegi forseti. Já, við erum með vinnu í gangi við frumvarpssmíðina á grunni þeirra tillagna sem settar voru fram af starfshópnum. Við erum að reyna að mæta því eftir því sem við best getum. Við settum frumvarpið í samráðsgátt og fengum þar gagnrýni og rýni sem við þurfum að reyna að mæta með einhverjum hætti. Frumvarpið er á síðustu metrunum, það er í yfirlestri og vonandi kemur það fram fyrr en síðar.
Ég er sammála hv. þingmanni varðandi sjálfbærni veiðanna og veiðistjórnina alla, hún þarf að vera á þann veg að við tryggjum sjálfbæra nýtingu þeirra fiskstofna sem við nytjum. Það er nú efni í aðra umræðu ef við viljum fara yfir allt sviðið í þeim efnum vegna þess að við erum að minni hyggju líka með nýtingu á nytjastofnum sem hægt væri að nýta með öðrum og sjálfbærari hætti en við gerum í dag. Það er of langt mál að setja þá umræðu á hér í kvöld. Ég veit að hv. þingmann dauðlangar að fá þá umræðu en ég er að hugsa um að sleppa henni. En bara svo það sé líka sagt, af því að hv. þingmaður nefndi að við ættum að vinna að gegn ólöglegri samþjöppun, þá er ég sammála því. Við höfum dæmi um að Fiskistofa hefur í tvígang sett fram athugasemdir og gefið lögbundinn frest til að bregðast við því. Þetta er bæði í stóra kerfinu og litla kerfinu. Varðandi hámarkshlutdeild og skilgreiningu á raunverulegum eigendum höfum við horft til þess að reyna að styðjast við þær reglur sem eru eðlislíkar þeim sem nýttar eru í samkeppnisréttinum og reyna að forma þær á þann veg að Fiskistofa telji sig geta unnið eftir þeim.