151. löggjafarþing — 73. fundur,  24. mars 2021.

fjármálaáætlun 2022--2026.

627. mál
[22:05]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Virðulegur forseti. Mig langar til þess að spyrja um stefnu ríkisstjórnarinnar um veiðigjöld. Búist er við 7,5 milljörðum í veiðigjöld á þessu ári, 4,8 milljörðum á síðasta ári. Ég spurði um gögn varðandi rekstur MAST og Fiskistofu og ýmislegt svoleiðis, um eftirlit með fiskveiðiauðlindinni okkar, hver heildarrekstrarkostnaðurinn var hjá Landhelgisgæslunni o.s.frv. Sá kostnaður er 7 milljarðar á ári, eða svo, að meðaltali. Það þýðir að við fáum 500 milljónir í arð út úr fiskveiðiauðlindinni með veiðigjaldinu. Í fyrra var tap upp á 2,2 milljarða, meðgjöf með útgerðinni. Á árunum 2015–2020 er meðaltalið u.þ.b. 2 milljarðar á ári sem hið opinbera fær í sinn hlut á meðan útgerðin hefur verið að greiða sér arð upp á 200 milljarða, þ.e. við fáum u.þ.b. 1% af þeim arði sem fiskveiðiauðlindin gefur. Þá eru, að ég held, meira að segja ótalin kaup á hafrannsóknarskipi.

Mig langar til þess að spyrja sjávarútvegsráðherra hver stefna ríkisstjórnarinnar er varðandi hlutdeild hins opinbera í þeim auðlindum sem við eigum í sameign og sjáum um, við á þingi og ríkisstjórnin, fyrir hönd þjóðarinnar.