151. löggjafarþing — 73. fundur,  24. mars 2021.

fjármálaáætlun 2022--2026.

627. mál
[22:09]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Við greiðum öll til samneyslunnar. Við notum vegi sameiginlega. Verið er að keyra annaðhvort með afla eða fiskeldisafurðir á stórum þungaflutningabifreiðum um frekar hruma vegi sem veldur ansi miklu álagi á þá. Sá skattur sem þessi fyrirtæki greiða fer að sjálfsögðu til almennra nota á samgöngukerfinu og þess háttar eins og allir aðrir skattar. Til hliðar við það er síðan aðgengi að sjávarauðlindinni (Gripið fram í.) sem er sérstaklega ætlað þessum aðilum, aðgengi að sjávarauðlindinni. Hvert er gjaldið á því og hver er afkoman af því á móti? Við skulum taka það til hliðar. Við erum öll jöfn gagnvart þessari skattlagningu. En sjávarútvegsfyrirtækin hafa aukalega meira að segja auknar heimildir til afskrifta. Það er aukagjöf. Tökum almenna skatta og fjármagnstekjurnar alveg til hliðar því að þær eru jafnar á alla, það er bara eðlileg starfsemi. Síðan er það þessi sérstaki aðgangur að sameiginlegri auðlind. Hver er arður samfélagsins af því miðað við arðinn af notkuninni á þeirri auðlind? (Forseti hringir.) Það er u.þ.b. 1% af heildararðinum þegar allt kemur til alls. Er það sanngjörn skipting?