fjármálaáætlun 2022--2026.
Virðulegi forseti. Það eru ýmsar stofnanir í þjóðfélaginu sem ríkið rekur, sem þjóna ýmsum atvinnugreinum án þess að sérstakur skattur sé lagður á viðkomandi atvinnugrein til að standa undir rekstri viðkomandi stofnana. Þær stofnanir sem hv. þingmaður nefndi áðan þjóna fleiri aðilum en fyrirtækjum í sjávarútvegi. Ef menn aðgreina það er það bara hið besta mál og gott mál. En í grunninn snýst spurningin um þetta: Á ríkið að leggja hærra gjald en 33% á niðurstöðu í afkomu eftir hverja veiðiferð eftir tegundum? Á ríkið að leggja hærra gjald á afkomuna en þessi 33%? Mér heyrist hv. þingmaður vera á þeirri skoðun að það þurfi að hækka þá prósentu. Allt í lagi. Ég virði alveg þá skoðun en ég er hjartanlega ósammála henni.
Það er búið að reikna út tekjur samkvæmt bestu vitund okkar færasta fólks og gjöld sömuleiðis og Skatturinn leggur þetta á sína vigt, það er reiknað út veiðigjald á hverja tegund og ríkið hirðir af nettóniðurstöðu 33%. Já, ég heyri hvað hv. þingmaður segir, en ástæða þess að ég nefndi skattspor sjávarútvegsins var einfaldlega að í umræðunni ber stundum á þeim misskilningi að veiðigjaldið sé eina skattgreiðsla fyrirtækja í sjávarútvegi. Ég veit að hv. þingmaður veit betur, en þegar við ræðum skattgreiðslur þessarar atvinnugreinar til samneyslunnar, vegna þess að þetta fer inn í hana að einhverju leyti, stundum, þá ber að taka allar greiðslur viðkomandi atvinnugreinar inn í umræðuna og þær eru, með þessu, einhvers staðar í kringum rúma 80 milljarða á ári.