fjármálaáætlun 2022--2026.
Herra forseti. Það deila ekki margir um að landbúnaðurinn er mikilvægur hlekkur í samfélagsgerð okkar og uppspretta dýrmætrar verðmætasköpunar. Mikilvægi innlendrar matvælaframleiðslu er augljóst, en einhverra hluta vegna virðist kerfið þjóna hagsmunum fortíðar frekar en nútíðar, að ég tali nú ekki um framtíðar. Sóknarfærin eru hins vegar alltumlykjandi og við höfum ítrekað átt það samtal. Það er á okkar ábyrgð að tryggja að hægt sé að grípa þau og við þurfum að fara að horfast í augu við þá staðreynd hér í salnum að við þurfum að tryggja meiri sveigjanleika í kerfinu á sama tíma og við tökumst á við þær áskoranir sem fylgja loftslags- og umhverfismálum. Við þurfum að koma á raunverulegu hvatakerfi fyrir landbúnaðinn sem stuðlar að nýliðun, nýsköpun og svarar nútímakröfum um gegnsæi og skilvirkni.
Ég tel að það sé gríðarlega mikilvægt að við búum svo um hnútana að bændur fái tækifæri til að bera ábyrgð á eigin starfi, ákveða sjálfir hvernig þeir haga eigin framleiðslu og eigin ræktun. Við hljótum að fara að komast að sameiginlegum skilningi á því að þetta framleiðsludrifna styrktarkerfi ríkisins er barn síns tíma og fara að auka framlög til landbúnaðarins með tilliti til grænna hvata, grænna lausna og hugmynda um nýsköpun á þessu sviði. Bændur á Íslandi eru með ein lökustu kjör innan OECD til viðbótar við það öngstræti sem núverandi styrkjakerfi virðist hafa komið framleiðslunni út í og við þekkjum.
Mig langar til að nota tækifærið hér þegar við ræðum fjármálaáætlun með tilheyrandi stefnumörkun fyrir ákveðin málefnasvið, og spyrja hæstv. landbúnaðarráðherra: Hvað sér hann fyrir sér að hægt sé að gera til að bæta kjör bænda? Hvernig vill hann tryggja skilvirkara kerfi sem þjónar hagsmunum bænda, sem þjónar hagsmunum umhverfisins og ekki síst hagsmunum neytenda?