fjármálaáætlun 2022--2026.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Hv. þingmaður nefndi að landbúnaðarkerfið þjónaði hagsmunum fortíðar. (Gripið fram í.) — Styrkjakerfið. Já, örugglega að einhverju leyti. En þegar við tölum um að við séum föst í einhverju verðum við líka að horfa á þá þætti sem ganga vissulega vel. Við sjáum alls konar nýbreytni og nýja sprota vera að skjóta rótum í landbúnaði á Íslandi. Það er víða í garðyrkjunni, víða í mjólkinni, sömuleiðis á sviði úrvinnslu ýmissa matvæla, þannig að þetta er ekki allt hraunfrosið og fast í fortíð. Það er mikil gróska í tengslum við t.d. landbúnað og ferðaþjónustu og fleiri þætti. Ég ætla líka að nefna eitt dæmi sem snýr að landnýtingu og horfir til þess að greiða úr áratugalangri þrætu um nýtingu jarðnæðis. Það er verkefni sem heitir GróLind sem gerir okkur fært eftir einhver ár að stýra beit í landinu með allt öðrum hætti.
Vandinn í landbúnaði er að stórum hluta bundinn við sauðfjárræktina, tel ég. Við endurskoðun síðustu sauðfjársamninga komum við inn nokkrum nýjum breytum. Við reyndum að laga framleiðsluna að innanlandsþörf. Við buðum upp á aðlögunarstyrki fyrir bændur til að breyta um búskaparhætti. Og af því að hv. þingmaður spyr hvernig við getum breytt, þá vænti ég þess að það komi fram í þeirri vinnu sem ég hef sett af stað í mótun nýrrar landbúnaðarstefnu. Við sjáum þess sömuleiðis stað í matvælastefnu sem við höfum nú þegar komið til framkvæmda. Það er að verða áherslubreyting. Næsta endurskoðun búvörusamninganna fer fram 2023. Fyrir þann tíma verður ný landbúnaðarstefna fyrir landið tilbúin og hún mun grundvallast (Forseti hringir.) á þeim áherslum sem efst eru á baugi núna og snúa að breyttum framleiðsluháttum, breyttri umgengni um land, loftslagsmálum og fleiri þáttum. (Forseti hringir.) Það er bara þannig. Þannig liggja þær áherslur.